Myndaannállinn 2021

Myndaannállinn 2021

Ætlar þetta hræðilega ár aldrei að enda???

Hvað er hægt að segja um þig, 2021? Þú varst engu skárra en forveri þinn.

Þú heilsaðir og kvaddir með Covid. Það mátti næstum því ekkert hittast og hafa gaman fyrir þessari veiru!

Svo fengum við jarðskjálfta. Ég kippi mér ekki lengur upp við þá, þó þeir séu stundum óþægilegir. Það er eitthvað súrt við það að vita upp á hár hvað þeir eru stórir og hvar þeir eiga upptök sín, eftir því úr hvaða átt þeir koma. En við fengum þó þetta glæsilega eldgos líka, í bónus frá öllum skjálftunum.

Þú byrjaðir af bjartsýni. Komið bóluefni gegn þessum hræðilega smitsjúkdómi! En þetta reyndist skammvinn bjartsýni. Því bóluefnið reyndist ekki virka eins vel og við vonuðum. Enn eru menn að smitast. Íslandsmeistaramótið í Covid stendur nú sem hæst og ekkert útlit fyrir að því ljúki. Og sumir láta ekki bólusetja sig. Sumir af góðum og gildum heilsufarsástæðum. En sumir eru bara hálfvitar. Eða kóvitar.

Og það sem hægt er að rífast um bólusetningar og sóttvarnarráðstafanir! Við erum ekkert saman í þessu lengur! Þessi faraldur hefur sundrað okkur meira en að sameina. Sumir verða bara að hafa frelsi einstaklingsins til að sleppa við sóttkví, ganga um óáreittir og taka áhættuna á því að smita aðra!

Stundum nenni ég bara ekki Íslandi!

Og kosningar. Tækifæri til breytinga. En við kusum sama fólkið yfir okkur aftur. Eða þið, en ekki ég! Stundum nenni ég ekki Íslendingum! Og við komumst að því að Borgnesingar kunna ekki að telja.

Ný Metoo-bylgja. Gamlir hræddir karlar af öllum kynjum, á öllum aldri, ósáttir við að það megi ekkert lengur (það hefur aldrei mátt, það vita það bara fleiri núna!) og jafnvel… að konur séu að taka af þeim völdin. Það yrði nú hræðilegt!

Þetta er svona það helsta sem ég man eftir úr fréttum.

En fyrir mig hefur þetta ár verið sæmilegt þrátt fyrir allt. Ég fékk ekki Covid. En það er bara tímaspursmál hvenær það verður. Ég verð illa svikinn ef frú Ómíkron bankar ekki upp á hjá mér áður en næsta ár verður hálfnað. Hef heldur ekki misst neinn nákominn úr veirunni.

Náði líka að ferðast eitthvað. Þó bara innanlands. Mig langar að komast til útlanda aftur!

Náði meira að segja að spila og syngja á tónleikum og njóta nokkurra menningarviðburða og fara á barinn á meðan veiran hvíldi sig aðeins.

Og hvað meira? Myndir segja víst meira en þúsund orð. Og svona var árið í myndum:

Það byrjaði ekki í Borgarnesi eins og venjulega, heldur heima, í Hafnarfirði, vegna Covid-samkomutakmarkana.

Flugeldar og svifriksmengun
Flugeldar yfir Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Þetta er ekki þoka, heldur svifryksmengun. Langt yfir heilsuverndarmörkum. Hvenær ætlum við eiginlega að banna flugelda?

Mætti í skírnarveislu hjá þessari stúlku.

Sigríður Steinunn á skírnardaginn
Litla Sigríður Steinunn Hjaltadóttir á skírnardaginn.

Mættti aftur til vinnu eftir að hafa verið að vinna heima í næstum því fjóra mánuði.

Fyrir utan Aðalbyggingu Háskóla Íslands
Gul viðvörun fyrir utan Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Prófaði að snorkla í Silfru á Þingvöllum. Ég reyndi þó að minnsta kosti. En komst að því að þetta er ekki fyrir mig. Ég hugsa að ég haldi mig við sundlaugarnar í framtíðinni!

Kafarabúningur
Uppstrílaður í kafarabúningi!

Nýtti tækifæri á milli samkomutakmarkana til að fara í leikhús.

Í áhorfendasal Þjóðleikhússins
Í áhorfendasal Þjóðleikhússins. Daginn eftir var sett á enn ein 20 manna samkomutakmörkun.

Fór Upp í Borgarnes um páskana

Vegvísar í Borgarnesi
Vegvísar í Borgarnesi

Fór að skoða eldgosið

Atli með eldgosið í baksýn
Bergnuminn yfir eldgosinu

Gekk nokkrum sinnum upp á Helgafell. Mun þó ekki hafa komið þangað upp nema 48 sinnum á árinu, sem er óvenju lítið miðað við undanfarin ár!

Atli uppi á Helgafelli
Uppi á Helgafelli

Fór aftur að skoða gosið, skegglaus í þetta sinn!

Atli með eldgosið í baksýn
Göngutúr að eldgosinu 1. maí.

Tók þátt í hátíðarhöldum 17. júní í Hafnarfirði

Skrúðganga 17. júní 2021
Með lúðrasveitinni fyrir skrúðgönguna 17. júní.

Fór í bað í Borgarfirði

Krauma í Borgarfirði
Krauma í Borgarfirði

Fór í hringferð um Ísland, með áherslu á Austurland:

Skoðaði nýja miðbæinn á Selfossi.

Hluti af nýja miðbænum á Selfossi
Húsið með næputurninum fremst á myndinni er endurbygging á húsi sem var á Vesturgötu í Hafnarfirði, við hliðina á A. Hansen. Það var rifið í áföngum til að greiða fyrir bílaumferð!

Stoppaði á Vík.

Nestisstund í Vík
Anna, Ósk og afi í nestisstoppi í Vík.

Sá Reynisdranga – samt naumlega fyrir þoku.

Reynisdrangar í þoku
Reynisdrangar í þoku.

Skoðaði Þórbergssetrið.

Þórbergssetrið að Hala í Suðursveit
Þórbergssetrið að Hala í Suðursveit

Gekk langleiðina að Fláajökli.

Fláajökull
Fláajökull er hluti af Vatnajökli.

Heimsótti Höfn í Hornafirði. Horfði m.a. á hluta af fótboltaleik. Reyndi fyrir mér sem íþróttaljósmyndari í fyrsta sinn.

Fótboltaleikur á Höfn í Hornafirði
Sindri og Augnablik keppa í 3. deild karla í fótbolta.

Staldraði við á Djúpavogi

Djúpivogur
Djúpivogur

Skoðaði eggin í Gleðivík, á Djúpavogi.

Eggin í Gleðivík
Æðaregg. Í bakgrunni þarna á sjónum er æðarkolla með unga.

Heimsótti Mjóafjörð.

Sólbrekka í Mjóafirði
Sólbrekka í Mjóafirði

Í Brekkuþorpi í Mjóafirði heita allir Vilhjálmur eða Hjálmar, eða eru Vilhjálmssynir/Vilhjálmsdætur eða Hjálmarssynir/Hjálmarsdætur.

Meira að segja hundarnir. Þessi hundur heitir Villi.

Villi hundur í Mjóafirði
Villi hundur í Mjóafirði.

Heimsótti Seyðisfjörð

Seyðisfjörður
Norðurgata á Seyðisfirði skreytt í regnbogalitum.

Skoðaði Álfaborg á Borgarfirði eystri

Álfaborg á Borgarfirði eystri
Álfaborg á Borgarfirði eystri

Skoðaði lunda á Borgarfirði

Lundi
Lundi Í Hafnarhólma

Stoppaði í Atlavík.

Atli í Atlavík
Atli í Atlavík. Hér spilaði Ringo líka 37 árum fyrr, næstum því upp á dag þegar þessi mynd var tekin.

Skoðaði Skriðuklaustur

Skriðuklaustur
Skriðuklaustur, upphaflega heimili Gunnars Gunnarssonar, rithöfundar.

Leit yfir Stuðlagil.

Stuðlagil
Vænsta klárinn vildi ég gefa til að vera kominn ofan í Stuðlagil.

Gisti á Syðra-Lóni.

Syðra-Lón
Syðra-Lón á Langanesi.

Fór út á Font, í blíðskaparveðri.

Á Fonti á Langanesi
Úti á Fonti á Langanesi. Lengra verður ekki komist á Íslandi.

Naut sólarinnar…

Atli í sólbaði
Í sólbaði á Syðra-Lóni. Það er alltaf sól á Norðurlandi!

…og sólarlagsins, úti við heimskautsins baug.

Sólarlag á Syðra-Lóni
Þistilfjörður og Syðra-Lón. Eruð þið ekki að grínast með hvað þetta er fallegt útsýni!

Gisti á gistiheimilinu Himnasvölum í Skagafirði. Var einn af síðustu gestunum þar, því gestgjafinn lést bara rúmri viku síðar.

Bílasafnið á Himnasvölum
Bílasafnið á Himnasvölum.

Skoðaði gosið í fjarlægð á þaksvölunum – frá miðbæ Hafnarfjarðar.

Gosmökkurinn
Gosmökkurinn séður frá miðbæ Hafnarfjarðar.

Náði nokkrum októberfestgiggum á meðan veiran tók sér frí.

Októberfest
Októberfest!

Þetta var ferðamáti ársins:

Rafmagnshlaupahjól
Rafmagnshlaupahjól, rafskútur, rafskottur, eða hvað sem þið kjósið að kalla þau.

Sá Bubba í Borgarleikhúsinu.

Bubbi Morthens - 9 líf
Bubbi Morthens – 9 líf

Mætti á kjörstað.

Kjörstaður
Kjörstaður

Bílafrekjan: Bílum lagt upp á gangstétt.

Bílafrekjan
Hálfvitar í umferð!

Við eigum nýja stjórnarskrá!

Við eigum nýja stjórnarskrá!
Við eigum nýja stjórnarskrá!

Söng á tónleikum með þessu fólki:

Kammerkór Hafnarfjarðar
Kammerkór Hafnarfjarðar á tónleikum í Hásölum. (Mynd: Margrét Pálsdóttir)

Og spilaði á tónleikum með þessu fólki:

Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Lúðrasveit Hafnarfjarðar fyrir tónleika í Norðurljósum, Hörpu.

Sá þennan krumma:

Krummi
Krummi á handriði göngubrúar yfir Hringbraut í Reykjavík.

Undirbjó jólin, svona eins og ég nennti.

Laufabrauð
Útskorið laufabrauð

Sá Baggalút í Háskólabíói.

Baggalútur í Háskólabíói
Ég á það skilið: Baggalútur, Bríet og Kristján Jóhannsson á tónleikum í Háskólabíói.

Hélt upp á jól og hækkandi sólargang síðustu helgi ársins.

Jólatré
Jólatréð í stofu stendur.

Já, og allur bjórinn sem ég drakk! Við yfirferð á Flickr kemur í ljós að stór hluti af myndum sem ég tók á þessu ári eru allskonar bjórmyndir. Það lætur mig líta illa út að birta þær allar. En hér er bara ein, af handahófi:

Kaldi
Skál fyrir nýju ári, krakkar!

Og um það bil þannig lýkur þessu ári.

Ég vona að við eigum fleiri samverustundir á næsta ári. Og þá meina ég samverustundir í þrívídd. Þó að einhverfuhlutinn af mér og introvertinn ég séum að vissu leyti ánægð með samkomutakmarkanir vil ég líka fara út að hitta fólk, djamma og djúsa, spila rassinn úr buxunum og koma ekki heim fyrr en klukkan 5-6 um morguninn. Ég vona að svo geti orðið sem fyrst á nýju ári.

Hafið það gott um áramótin og takk fyrir gamla árið.

Comments are closed.