Myndaannállinn 2025

Myndaannállinn 2025

Engar hugleiðingar um ástandið í heiminum eða þjóðfélaginu um þessi áramót. Ég lofaði líka einhverntíma að þessi vefur yrði ekki vettvangur pólitískrar dægurmálaumræðu. Það er nóg af svoleiðis annars staðar á internetinu. Það fer líka betur með geðheilsuna að fylgjast ekki með fréttum. Vindum okkur bara beint í það hvernig þetta ár hefur verið hjá mér.

Fyrir mig hefur þetta verið ágætis ár. Ég hef komist stóráfallalaust í gegnum það. Heilsan hefur verið í lagi, sem maður getur þakkað fyrir, kominn á þennan aldur. Hjólatúrar og fjallgöngur. Og sund eftir því sem Vesturbæjarlaugin var opin. Fullt af ferðalögum. Mikið spil. Smá söngur. Smá kaffi. Mikill bjór. En svoleiðis myndir þola ekki alltaf dagsljósið. Samverustundir með vinum, kunningjum og ættingjum, bæði hérlendis og erlendis.

Ég segi ekki alltaf frá öllu á samfélagsmiðlum sem ég geri. Facebook er líka orðin svo leiðinleg. Það er miklu betra að taka bara það helsta saman frá árinu og segja frá því öllu í einu. Og þá á stað sem Hr. Sykurbergur hefur ekki ritstjórnarvald yfir.

Hér eru helstu hápunktar ársins.

Árið 2025 byrjaði á sama stað og 2024 endaði: í Birkibergi í Hafnarfirði.

Flugeldar og svifryksmengun um áramót í Setbergshverfinu í Hafnarfirði.
Flugeldar yfir Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Svifryksmengun langt yfir heilsuverndarmörkum!

Hélt áfram að vinna þarna:

Aðalbygging Háskóla Íslands, upplýst í myrkri
Aðalbygging Háskóla Íslands í janúarmyrkrinu.

Þrjóskaðist við að hjóla í vinnuna, næstum því á hverjum degi. Slapp lifandi, ómeiddur og án slysa frá bílafrekjunni þetta ár.

Hjól á göngustíg í Skerjafirði, nálægt Reykjavíkurflugvelli.
Hjólið á góðviðrisdegi í janúar.

En allar þessar lokanir og helvítis hjáleiðir að gera hjólandi og gangandi lífið leitt! Þetta ár hefur sýnt að skipulagsyfirvöld og verktakar, hvar sem þau eru á höfuðborgarsvæðinu, kunna ekki að útbúa almennilegar, notendavænar hjáleiðir.

Tímabundið umferðarskilti merkt Hjáleið.
Ein af fjölmörgum hjáleiðum á þessu ári!

Mætti á árlega ættarþorrablót Syðra-Lónsættar í febrúar.

Fólk að dansa á þorrablóti.
Stuð og stemmning á þorrablóti Syðra-Lónsættar, á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Mætti á UT-messuna í Hörpu.

UT-messan í Hörpu.
Fólk á UT-messunni í Hörpu.

Spilaði á þorrablóti Hafnarfjarðar. Og læt ekki góð tækifæri til myndatöku í myndakössum frá mér sleppa.

Atli með trompet á þorrablóti Hafnarfjarðar.
Með trompetinn á þorrablóti Hafnarfjarðar.

Mætti á árshátíð Háskóla Íslands. Það var gaman.

Love-Gúrú að performera uppi á sviði.
Love Gúrú tryllir lýðinn á árshátíð Háskóla Íslands.

Mætti og tók þátt í háskóladeginum, samkvæmt venju.

Gestir á háskóladeginum á Háskólatorgi, Háskóla Íslands
Gestir og framtíðarnemendur við Háskóla Íslands.

Söng Carmina Burana með þessu fólki.

Kór á æfingu í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Hafnarfirði.
Kammerkór Hafnarfjarðar, ungmennakórinn Bergmál, Kór Öldutúnsskóla, Barnakór Hafnarfjarðarkirkju og gestir (og Soraya og Eggert slagverksleikarar) á æfingu fyrir Carminu Burönu í íþróttahúsinu Strandgötu.

En ákvað á haustdögum að taka mér pásu frá kórstörfum. Það reyndist svo afdrifarík pása að kórinn var, að því er virðist, lagður niður og sameinaður öðrum. Talandi um að vera ómissandi!

Kórinn Cantus, áður þekktur sem Kammerkór Hafnarfjarðar og kór Hafnarfjarðarkirkju, á tónleikum 21. desember.

Spilaði á tónleikum í Hörpu með þessu fólki.

Lúðrasveit Hafnarfjarðar á æfingu fyrir tónleika í Norðurljósum, Hörpu.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar á æfingu fyrir 75 ára afmælistónleika í Norðurljósum, Hörpu.

Fór í nokkra göngutúra upp á Helgafell. Mun þó ekki hafa komið þangað upp nema 17 sinnum þetta árið. Hér er strax komið tækifæri til bætinga á næsta ári.

Skilti sem bendir á Helgafell. Helgafell í Hafnarfirði í bakgrunni.
Upphafsstaðurinn við Helgafell í Hafnarfirði.

Fór í vorferð til Münchenar með þessum:

Á góðri stund í Augustiner-bjórgarðinum í München.
Á góðri stund í Gústa: Brynjar, Þórhallur Ingi, Finnbogi, Eiríkur Rafn og undirritaður í Augustiner-bjórgarðinum í München.

En þessi ferð var ekki bara bjórdrykkja, heldur líka endurmenntun. Fór að hlusta á hvernig heimamenn spila bæverska polkamúsík.

Wolfgang Grünbauer stjórnar lúðrasveitinni Die Oktoberfest Musikanten.
Wolfgang Grünbauer (á miðri mynd) stjórnar lúðrasveitinni Die Oktoberfest-Musikanten.

Kom á Bessastaði í fyrsta sinn á ævinni.

Bessastaðir
Starfsmenn Háskóla Íslands í vorferð á Bessastöðum.

Fór til Prag.

Prag
Prag og Moldá.

Spilaði með þessu fólki í Prag. Fengum m.a.s. gullverðlaun fyrir frammistöðu okkar!

Lúðrasveit Hafnarfjarðar í lúðrasveitakeppni i Prag.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar í lúðrasveitakeppni í Prag.

Fór í bað í Kraumu

Krauma í Borgarfirði

Fór til Barcelona, til að fá eitthvað sumar og sól á þessu ári.

Útsýni yfir Barcelona. Sagrada familía fyrir miðri mynd.
Barcelona.

Gerði líka stutt stopp í Frakklandi og Andorra.

Mynd frá Andorra la vella, höfuðborg Andorra.
Andorra la vella, höfuðborg Andorra

Fór til Montserrat.

Kirkja og fjöll í Montserrat.
Fjallstopparnir í Montserrat.

Skoðaði Casa Batllo, sem var bara á næsta götuhorni við hótelið mitt í Barcelona.

Horft út um glugga á Casa Batllo í Barcelona.
Casa Batlló, hannað af arkitektinum Antoni Gaudí.

Heilsaði upp á gíraffa.

Tveir gíraffar í dýragarðinum í Barcelona.
Gíraffarnir í dýragarðinum í Barcelona voru hressir.

Skoðaði Sagrada Familía, að innan sem utan.

Sagrada Familía í Barcelona.
Sagrada Familía, eitt helsta kennileiti Barcelona.

Fór til Girona

Svipmynd frá Girona.
Girona er skemmtilegur miðaldabær.

Sá rómverskar fornminjar í Tarragona

Leifar af rómversku hringleikahúsi í Tarragona á Spáni (Katalóníu).
Leifar af rómversku hringleikahúsi. Fórum ekki niður að þeim. Það var of heitt þennan dag.

Lærði hvernig á að elda paellu.

Paella, þjóðarréttur Katalóníu.
Alvöru spænsk, eða katalónsk paella.

Hékk í tjaldinu í Hjarta Hafnarfjarðar flestar helgar „sumarsins“, á meðan ég var ekki í útlöndum.

Bjórtjaldið í Hjarta Hafnarfjarðar.
Bjórtjaldið í Hjarta Hafnarfjarðar.

Greifarnir í tónleikatjaldinu í Hjarta Hafnarfjarðar, á laugardagskvöldi verslunarmannahelgar.

Greifarnir á balli í Hjarta Hafnarfjarðar sumarið 2025.
Þetta eru samt ekki Greifarnir þegar Felix Bergsson er ekki með þeim.

Synti í Vesturbæjarlauginni, á meðan hún var ekki lokuð vegna fúskvinnu verktaka.

Vesturbæjarlaugin í Reykjavík.
Vesturbæjarlaugin á einum af opnunardögum sumarsins.

Fékk mér kaffi með þessu fólki.

Starfsmenn Markaðs- og samskiptasviðs Háskóla Íslands í kaffi fyrir utan Háskólatorg.
Starfsmenn (eða hluti starfsmanna) Markaðs- og samskiptasviðs HÍ í morgunkaffi fyrir utan Háskólatorg: Sigurjón, Linda, Bryndís, Jón Örn og Bjössi.

Aðstoðaði vini í vanda á menningarnótt.

Trompetdeild Svansins fyrir utan Hörpu á menningarnótt.
Smá trompetahallæri hjá Svaninum. Trompetdeild Svansins í lúðrasveitabardaganum fyrir utan Hörpu á menningarnótt: Sonja, Björgvin, Atli og Hinrik.

Fór aftur til fortíðar og eignaðist plötuspilara.

Ísland, með Spilverki þjóðanna undir nálinni.
Nýi plötuspilarinn. Fyrsta platan sem sett var undir nálina á honum var Ísland með Spilverki þjóðanna.

Spilaði á nokkrum októberfestum um haustið, eins og venjulega.

Félagar úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar á októberfesti á RVK brewing í Skipholti.
Nokkrir LH-félagar á októberfestgiggi hjá RVK-brewing: Atli, Egill, Ragnar og Rúnar.

Fór í vinnuferð til Vínar. En byrjaði í smá túristaleik þar. Skoðaði Stefánsdómkirkjuna.

Stefánsdómkirkjan í Vín.
Stefánsdómkirkjan í Vín.

Borðaði Sachertertusneið á Sacherhótelinu.

Sacherterta með rjóma.
Sacherterta með rjóma.

Skoðaði Schönbrunn-garðinn.

Schönbrunn-höllin í Vín.
Schönbrunn-höllin í Vín. Hún var sumarbústaður Habsborgarafjölskyldunnar.

Fór á Drupal-ráðstefnu, m.a. með þessu fólki.

Drupalcon-ráðstefnan í Vín, október 2025.
Á Drupalcon-ráðstefnunni í Vín: Siggi, Linda, Hrafnhildur, Logi og undirritaður. (Og eitthvað fólk sem ég þekki ekki).

Ég og Drupal-kúlan í Vín.

Atli og Drupal-kúlan í Vín.
Drupal-kúlan hefur fylgt flestum Drupal-ráðstefnum frá því hún var haldin fyrst, árið 2005.

Tókst næstum því að kveikja í IKEA-geitinni.

IKEA-geitin
Jólageitin fyrir utan IKEA í Garðabæ.

Spilaði með þessu fólki í Víðistaðakirkju.

Lúðrasveit Hafnarfjarðar á æfingu fyrir tónleika í Víðistaðakirkju.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar á æfingu fyrir tónleika í Víðistaðakirkju.

Bjó til laufabrauð fyrir jólin.

Útskorið laufabrauð, með stafnum A.
Útskorið laufabrauð.

Fór í aðventuferð til Kaupmannahafnar með þessu fólki.

Úti að borða á Nyhavns færgekro.
Á Nyhavns færgekro: Snorri, Íris, Atli, Herborg, Hildur, Gunnhildur og Gréta (mamma).

Skoðaði jólamarkaði í Kaupmannahöfn.

H.C. Andersen julemarked
H.C. Andersen julemarked á Nytorv í Kaupmannahöfn.

Fór yfir Eyrasundsbrúna, til Malmö.

Svipmynd frá Malmö.
Svipmynd frá Malmö.

Skoðaði jólin í Tívolí.

Tívolí í Kaupmannahöfn.
Jólastemningin í Tívolíinu í Kaupmannahöfn.

Heimsótti Friðrik kóng.

Amalienborg, konungshöllin í Danmörku.
Amalienborg, heimili dönsku konungsfjölskyldunnar.

Sá Litlu hafmeyjuna.

Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn.
Den lille havfrue.

Labbaði upp í Sívalaturninn.

Sívaliturninn í Kaupmannahöfn
Sívaliturninn. Miðja Kaupmannahafnar.

Og kynnti mér kraftbjóramenningu Kaupmannahafnar.

Bjórglas á veitingastað í Kaupmannahöfn.
Einn af fjölmörgum handverksbjórum sem Kaupmannahöfn hefur upp á að bjóða.

Borðaði skötu á Þorláksmessu.

Skata og meðlæti.
Skata, saltfiskur og meðlæti.

Hélt upp á jól og hækkandi sólargang í lok ársins.

Jólatré í stofunni.
Jólatréð í stofu stendur.

Nýtti svo hlýindakaflann og snjóleysið í þrjá Helgafellsgöngutúra dagana milli jóla og nýárs.

Helgafell í Hafnarfirði
Helgafellið umlukið þoku.

Og nokkurnveginn svona lýkur árinu 2025.

Þakka öllum fyrir samveru og samskipti á þessu ári. Megi 2026 færa ykkur fullt af skemmtilegheitum, kærleik, gleði, gæfu, ást frið og allskonar.

Comments are closed.