Trúir þú á álfasögur?
Tók mig loksins til og las Skuggasund eftir Arnald Indriðason, næstum því ári eftir að hún kom út.
Í Skuggasundi er fléttað saman frásögnum frá tveimur tímum, annars vegar úr nútímanum (eða nýliðnum árum, u.þ.b. 2009-2010 skv. mínum útreikningum) og hins vegar frá árum seinni heimsstyrjaldarinnar, einkum frá árinu 1944. Aðdáendur Arnaldar Indriðasonar þekkja svona flakk á milli ólíkra tímaskeiða úr fyrri bókum hans, til dæmis úr Grafarþögn og Kleifarvatni.
Í Skuggasundi er ekki fylgst með Erlendi og félögum, heldur kynnumst við nýjum persónum. Í fortíðinni er sögð saga af lögreglumönnunum Flóvent og Thorson, sem rannsaka morð á ungri stúlku sem finnst látin á bak við Þjóðleikhúsið vetrardag einn árið 1944. Í nútíðinni er fylgst með Konráði, lögreglumanni á eftirlaunum, sem tekur að sér að aðstoða rannsóknarlögregluna við rannsókn á morði gamals manns sem finnst látinn í íbúð sinni í Skuggahverfinu í Reykjavík. Í íbúð gamla mannsins finnast blaðaúrklippur sem greina frá andláti stúlkunnar á bak við Þjóðleikhúsið næstum því 70 árum áður. Eftir því sem sögunni vindur fram kynnist Konráð sögu stúlkunnar og kemst að því hvers vegna gamli maðurinn hefur áhuga á máli hennar.
Rannsóknir á dauða stúlkunnar og gamla mannsins eru í forgrunni sögunnar. En eins og í flestum fyrri skáldsögum Arnaldar er fjallað um ýmis önnur mál. Í Skuggasundi er sagt frá gamla íslenska sveitasamfélaginu sem er smám saman að líða undir lok. Íslendingar eru nýskriðnir út úr moldarkofunum árið 1944. Borgarsamfélagið í Reykjavík er smám saman að taka við af sveitasamfélaginu, en ennþá eimir eftir af ruddamennsku, lúðaskap og molbúahætti Íslendinga. Gamla samfélagið og viðhorf þess eru þó sínálæg og það er óvíst hvort að þau muni nokkurn tíma hverfa alveg, hvort sem það eru viðhorf til fóstureyðinga, kynjajafnréttis, samkynhneigðra eða óútskýrðra mannshvarfa eða dauðsfalla.
Í sögunni eru áberandi vangaveltur um það hvernig þjóðsögur af álfum og huldufólki hafa orðið til. Þær hafa líklega ekki orðið til úr engu, heldur hljóta einhverjir raunverulegir og stundum alvarlegir atburðir að búa að baki þeim. Konu er til dæmis nauðgað af einhverjum manni, verður ólétt eftir nauðgara sinn, en í stað þess að segja frá því sem raunverulega gerðist býr hún til sögu um að álfur eða huldumaður hafi lagst með henni:
„Það var auðvitað erfið reynsla og huldufólkssögurnar fegruðu hana og deyfðu sársaukann. Í sögunum eignast konur börn með glæsilegum og blíðum huldumönnum, sem eru algjör andstæða við mennsku rustana, og börnin eru borin út til þeirra. Þau alast svo upp hjá feðrum sínum við gott atlæti og snúa jafnvel aftur til mannheima síðar. Þannig eru sögurnar í og með notaðar til þess að milda sársaukafulla reynslu.“
Skuggasund gerist að mestu leyti í Reykjavík stríðsáranna, og þá á nokkuð afmörkuðum stað í borginni, þ.e. í Skuggahverfinu. Bandaríkjaher er með miðstöðvar í Reykjavík, og birgðageymsla hersins er í hálfkláruðaðri byggingu Þjóðleikhússins.
Það er skemmtilegt hverng Þjóðleikhúsið er notað sem rammi utan um þjóðsögurnar. Leikhúsið er manngerð „hamraborg sem minna skyldi á íslensku þjóðsögurnar um álfa og huldufólk. Leikhúsgestir áttu að ímynda sér að þeir gengju í björg þegar þeir stigju inn í þetta mikla leikhús og hyrfu inn í glitsali ævintýranna.“ Einnig kemur fram skemmtileg pæling um hvort að bandarísku hermennirnir í Reykjavík í seinni heimsstyrjöldinni hafi tekið við hlutverki álfa og huldufólks fyrr á öldum. Amerískir hermenn og álfar eru andstæður við íslenska karlmenn og rustaskap og sveitalubbahátt þeirra.
Fæstar persónur koma á óvart eftir að búið er að kynna þær til sögunar. Við fáum að kynnast bakgrunni flestra aðalpersónanna en þær eru frekar flatar og einsleitar – kannski steríótýpur. Undantekning frá þessu er þó gamli maðurinn, Stefán, sem finnst látinn á heimili sínu. Við fáum að kynnast honum og lífi hans og margt óvænt kemur í ljós um hann eftir því sem sögunni vindur fram. Engin persóna er samt það eftirminnilegt að hún eigi eftir að lifa með þjóðinni og fá sömu stöðu og til dæmis Erlendur lögreglumaður.
Maður veit orðið nokkurn veginn hvar maður hefur Arnald ef maður hefur lesið einhverjar af bókum hans. Skuggasund er þar engin undantekning. Hún er þó ekki leiðinleg, öðru nær. Skuggasund er vel skrifuð bók, ein af þeim skemmtilegri eftir Arnald. Sögufléttan er skemmtileg. Ég hef alltaf gaman af því þegar hann flakkar með frásögnina fram og aftur í tíma. Og það er skemmtilegt hvernig fortíðin og nútíðin fléttast saman, nútíðin eltir fortíðina og tímarnir tveir mætast að lokum þegar öll kurl eru komin til grafar.